Aðalfundur IcelandSIF 2020

Aðalfundarboð

Reykjavík, 28. apríl 2020

Stjórn IcelandSIF, kt. 461217-1330, Smáratorgi 3, 200 Kópavogi, boðar hér með til aðalfundar félagsins 2020. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 27. maí og hefst hann kl. 8.30.

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir, sbr. 5. gr. samþykkta félagsins:

1. Kosning fundarstjóra

2. Skýrsla stjórnar lögð fram

3. Reikningar lagðir fram til samþykktar

4. Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár

5. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna

a. Tillaga um að ekki verði greidd stjórnarlaun

6. Kosning stjórnar

7. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns

a. Tillaga er um að Deloitte ehf., kt. 521098-2449, verði kjörið endurskoðandi félagsins

8. Ákvörðun félagsgjalds

b. Tillaga er um að félagsgjald verði óbreytt

9. Tillögur að breytingum á samþykktum, ef þær liggja fyrir

10. Önnur mál

Tillögur sem félagsaðilar vilja leggja fyrir fundinn þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 8.30 miðvikudaginn 6. maí nk.

Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 8.30 föstudaginn 22. maí nk.

Endanleg dagskrá og fram komnar tillögur munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar IcelandSIF

Kristín Jóna Kristjánsdóttir

Stjórnarformaður

27maí
Tímasetning
08:30 - 10:00
Staðsetning

Fundarboð með hlekk á viðburðinn verður sendur í tölvupósti á skráða aðila, daginn fyrir fundinn.

Skráning opnar:

kl. 09:00 2/04/2020

Skráning endar:

kl. 17:00 26/05/2020