Stjórn IcelandSIF bendir félagsmönnum á að aðalfundur IcelandSIF verður haldinn miðvikudaginn 20. maí og hefst kl. 9.00. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá klukkan 8:30.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Bent er á að framboð til stjórnar skulu berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins í síðasta lagi kl. 16:00 miðvikudaginn 29. apríl nk.
Tillögur sem félagsaðilar vilja leggja fyrir fundinn þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 16:00 föstudaginn 15. maí nk.
Endanleg dagskrá og fram komnar tillögur munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun ávarpa fundargesti í upphafi fundar.