NordicSIF 2026 í Helsinki

7/09/2026

NordicSIF ráðstefnan var haldin í Helsinki þann 25. ágúst síðastliðinn á vegum FinSIF, undir þemanu „Nordic Edge: Shaping the Future of Investing". Ráðstefnan var uppfull af fróðleik og kraftmiklum umræðum en farið var yfir víðan völl – loftslagsáhættu, mannréttindi, geópólitík, gervigreind og það sem einkennir og mótar sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar í dag.

Við þökkum FinSIF kærlega fyrir einstaklega vel heppnaða ráðstefnu og góðar móttökur.

Kyndillinn var afhentur Heiðrúnu Hödd Jónsdóttur, varaformanni IcelandSIF, fyrir næstu NordicSIF ráðstefnu sem haldin verður í Reykjavík þann 3. júní 2027, undir yfirskriftinni „The Nordic Resilience Agenda".

Skráðu þig á póstlista fyrir NordicSIF 2027