IcelandSIF stendur fyrir staðfundi þann 21. apríl klukkan 9:00 í húsnæði KPMG þar sem fjallað verður um vaxandi geopólitíska áhættu og hvaða áhrif hún hefur á fjármálamarkaði, fjárfestingar og sjálfbæra þróun. Húsið opnar kl. 8:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Markmið fundarins er skoða hvernig geopólitísk þróun mótar fjárfestingarumhverfið og hvaða áskoranir og tækifæri felast í breyttu alþjóðlegu landslagi. Sérfræðingar munu ræða hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta greint slíka áhættu betur og brugðist við henni á ábyrgan og framsýnan hátt.
Fram koma:
Sóley og Pétur flytja erindi og verða síðan í pallborði ásamt Hafsteini.
Fundurinn er opinn aðildarfélögum IcelandSIF.
Sóley Kaldal er sérfræðingur hjá Innri endurskoðun Landsbankans. Hún er áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur og auk þess með meistaragráðu í alþjóðlegum öryggismálum frá Jackson School of Global Affairs við Yale háskóla. Sóley hefur tuttugu ára reynslu af greiningum og stefnumótun í öryggismálum. Áður en hún kom til Landsbankans leiddi hún sendinefnd milliríkjasamninga hjá stjórnarráðinu.
Pétur Pétur Krogh Ólafsson var áður forstöðumaður sjálfbærni og viðskiptaþróunar hjá Veitum. Hann starfaði þar áður sem aðstoðarmaður borgarstjóra frá árinu 2014. Hann var bæjarfulltrúi í Kópavogi og sinnti ritstjórnar- og markaðsmálum á Skjánum. Pétur er með MA í bókmenntafræði og BA í sagnfræði.
Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku, útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2012 og lauk meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics árið 2015. Hafsteinn á að baki áralanga reynslu af alþjóðlegum fjármálamarkaði og hefur vakið verðskuldaða athygli sem álitsgjafi á alþjóðlegri efnahagsþróun, en áður starfaði hann við greiningar í fjárfestingateymi Kviku Limited. Frá lokum meistaranáms árið 2015 starfaði Hafsteinn fyrst hjá ráðgjafarfyrirtækinu Newstate Partners, sem er leiðandi í ráðgjöf á sviði opinberra fjármála og stýringu og endurskipulagningu opinberra skulda, og síðar hjá GAMMA Capital Management Ltd. Einnig var Hafsteinn á árum áður hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og starfaði einnig sem fjölmiðlamaður með námi, lengst af á fréttastofu Stöðvar 2.
KPMG, Borgartún 27
kl. 10:00 23/03/2026
kl. 12:00 20/04/2026