IcelandSIF stendur fyrir staðfundi þann 22. október klukkan 9:00 í húsnæði Landsbankans þar sem fjallað verður um nýlegar vendingar í sjálfbærniregluverki á Íslandi og gildandi kröfur um sjálfbærniupplýsingagjöf. Húsið opnar kl. 8:30 og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Markmið fundarins er að greina frá helstu kröfum um sjálfbærni og sjálfbærniupplýsingagjöf sem gilda um fjármálafyrirtæki í dag á skýran og hagnýtan hátt.
Á fundinum verða erindi frá eftirfarandi aðilum:
Að erindum loknum gefst tími fyrir spurningar. Við viljum hvetja gesti til að senda inn þær spurningar sem þau kunna að hafa hér.
Fundurinn er opinn aðildarfélögum IcelandSIF.
Nánari dagskrá verður kynnt síðar.