Gervigreind og sjálfbærar fjárfestingar: samantekt og ljósmyndir

19/11/2026

IcelandSIF stóð fyrir staðfundi starfsársins þann 11. nóvember s.l. í húsnæði Arion banka þar sem fjallað var um ábyrga innleiðingu og notkun gervigreindar. Fyrirlesarar voru fjölbreyttir en fram komu:

  • Tate Cantrell, tæknistjóri (CTO) hjá Verne
  • Brynhildur Ýr Ottósdóttir, öryggisstjóri LSR
  • Jónas R. Gunnarsson, forstöðumaður sjóðastýringar hjá Kviku eignastýringu

Við þökkum Tate, Brynhildi og Jónasi kærlega fyrir framlag sitt í umræðuna um gervigreind og sjálfbærar fjárfestingar.

Dafina Morina í viðburðahópi IcelandSIF var fundarstjóri.

Hér að neðan má lesa samantekt af erindum ásamt ljósmyndum af viðburðinum.

Responsible AI Future: Iceland’s Sustainable Advantage

Tate Cantrell fjallaði um hagstæð skilyrði Íslands til reksturs gagnavera og benti á að ör þróun gervigreindar síðustu tíu ár hafi sýnt fram á sterka samkeppnisstöðu landsins. Hann benti á tækifæri til fjárfestinga í gervigreind í ljósi þess að eftirspurn væri meiri en framboð. Að hans mati eigum við ekki að óttast tæknina heldur líta á hana sem tækifæri til að leysa flókin verkefni sem við höfum hingað til ekki haft tól til að takast á við.

Gervigreind og gagnaöryggi: hvað felst í notkun á gervigreind? Hverjar eru helstu hætturnar?

Brynhildur Ýr Ottósdóttir fór yfir hvað gerist þegar fyrirspurn er send til gervigreindar og lagði áherslu á að upplýsingaöryggi sé á okkar ábyrgð, ekki þjónustuaðilans. Hún brýndi mikilvægi þess að fyrirtæki setji sér skýra umgjörð, stefnur og reglur um notkun gervigreindar – þar á meðal að starfsfólk noti ekki persónulega aðganga í vinnutengdum verkefnum. Einnig varaði hún við svokölluðum földum fyrirmælum, þar sem gervigreind getur átt erfitt með að greina á milli gagna og fyrirmæla. Lokaorð hennar voru að ábyrgð og varfærni þyrftu að vera leiðarljós við notkun gervigreindar.

Aðstoðarmanneskjan sem okkur öll hefur dreymt um: notkun gervigreindar í eignastýringu

Jónas R. Gunnarsson fjallaði um hvernig nýta megi gervigreind til að auka skilvirkni í starfi, meðal annars með því að fela henni tímafrek verkefni sem krefjast takmarkaðrar sérfræðikunnáttu. Gervigreindin gerir okkur kleift að greina gögn með meiri dýpt en áður var mögulegt. Jónas lagði áherslu á að skilgreina skýrt markmið verkefna sem henni eru falin, hvaða reglum hún skuli fylgja og hvaða innri og ytri gögn hún eigi að nota. Jafnframt þurfi að velja viðeigandi gagnaveitur og aðlaga notkunina að eigin gögnum og vinnulagi. Með því að þjálfa gervigreindina á okkar eigin gögnum og verklagi má auka skilvirkni til muna, að því gefnu að skýrar reglur séu til staðar.