Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar IcelandSIF 2026

13/05/2026

Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar IcelandSIF þann 20. maí 2026 liggja nú fyrir.

Aðalfundur IcelandSIF verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 20. maí og hefst fundurinn kl. 9:00. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá klukkan 8:30.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpa fundargesti.

Við hvetjum ykkur til að skrá ykkur á fundinn.

Framboð til stjórnar:

  • Ása I. Róbertsdóttir, sérfræðingur í fjárfestingum hjá TM
  • Heiðrún Hödd Jónsdóttir, sjálfbærnisérfræðingur hjá LSR
  • Helena Guðjónsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar og sjálfbærni hjá Íslandssjóðum
  • Jóhanna K. Claessen, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi hjá Landsbankanum
  • Kristján Andrésson, forstöðumaður rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka
  • Per Matts Henje, sjóðsstjóri hjá Stefni
  • Tómas N. Möller, yfirlögfræðingur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Nánar um aðalfundinn og skráning hér.

Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar IcelandSIF

Ársreikningur IcelandSIF 2025

Samþykktir IcelandSIF