Grein þessi fjallar um nýjan VS staðal Evrópusambandsins um sjálfbærniupplýsingagjöf og áhrif hans á fyrirtæki, bæði innan og utan gildissviðs CSRD. Greinarhöfundur er Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Arion banka. Í greininni fjallar hún um hlutverk staðalsins við að samræma sjálfbærniupplýsingagjöf og setja mörk á upplýsingakröfur innan virðiskeðjunnar. Jafnframt er farið yfir hvaða þýðingu staðallinn kann að hafa fyrir íslensk fyrirtæki og hvernig hann getur stuðlað að einfaldari og samræmdari upplýsingagjöf.
CSRD-löggjöfin er komin á þingmálaskrá og því vert að huga að heildarmyndinni og skoða hvernig evrópska regluverkið um sjálfbærniupplýsingar hefur þróast. Þar skiptir nýr Voluntary Sustainability Reporting Standard (VS) máli, ekki aðeins fyrir fyrirtæki sem falla utan CSRD heldur einnig þau fyrirtæki sem falla munu undir CSRD löggjöfina.
VS var samþykktur í sumar með framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2026/1560 við ársreikningatilskipunina. Reglugerðin fellur undir gildissvið EES-samningsins en hefur ekki tekið gildi á Íslandi. Líkur eru á að hún fylgi með þegar CSRD löggjöfin verður tekin fyrir.
Staðallinn byggir á VSME, valfrjálsum staðli sem Evrópusambandið lét þróa fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. VSME er algjörlega valkvæður og ekki lögbundinn innan Evrópusambandsins. Efnislega er nánast enginn munur á stöðlunum. VS skiptist, líkt og VSME, í grunn upplýsingagjöf (e. basic module) og ítarlega upplýsingagjöf (e. comprehensive module) en munurinn fellst einkum í að upplýsingapunktarnir í VS eru flokkaðir í nauðsynlega, skilyrta við ákveðnar aðstæður, valkvæða og sem tengjast ákveðnum atvinnugreinum.
VS reglugerðin gegnir tvíþættu hlutverki. Annars vegar afmarkar hún upplýsingabeiðnir fyrirtækja sem falla undir CSRD og hins vegar veitir hún fyrirtækjum utan CSRD ramma fyrir samræmda upplýsingagjöf. Reglugerðin setur CSRD-skyldum fyrirtækjum þannig þak á hvaða upplýsingum þau mega óska eftir frá fyrirtækjum í virðiskeðjunni vegna sjálfbærniskýrslugerðar sinnar. Afmörkunin fellst í að CSRD-skyld fyrirtæki mega ekki krefja fyrirtæki í virðiskeðjunni, sem ekki falla undir CSRD, um upplýsingar umfram þau mörk sem sett eru í VS. Markmiðið með þessu er að draga úr svokölluðum afleiddum áhrifum niður virðiskeðjuna (e. trickle-down effect) þar sem ítarlegar upplýsingakröfur færast niður virðiskeðjuna til minni fyrirtækja.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að þetta þýðir ekki að heimild til að afla upplýsinga stoppi endilega strax við birgja í fyrsta þrepi virðiskeðjunnar. VS setur nefnilega fyrst og fremst mörk á hvaða upplýsingar má sækja en takmarkar ekki hversu mörg þrep niður virðiskeðjunnar má fara. Mikilvæg sjálfbærniáhrif geta verið lengra upp eða niður virðiskeðjuna og upplýsingagjöf undir CSRD reglugerðinni getur því þurft að taka tillit til þeirra.
CSRD-skyld fyrirtæki ættu því að skoða hvaða sjálfbærniupplýsinga þau afla hjá viðskiptavinum, birgjum eða öðrum aðilum í virðiskeðjunni og í hvaða tilgangi þeim er aflað. Sé tilgangur öflunarinnar tengdur birtingu sjálfbærniupplýsinga þarf að kanna hvort upplýsingarnar séu í samræmi við þau mörk sem VS setur. Sé tilgangurinn annar en birting sjálfbærniupplýsinga, svo sem vegna lánveitinga eða annars viðskiptalegs eða lagalegs tilgangs, er ekki sjálfgefið að mörkin sem VS setur gildi og þarf að skoða það sérstaklega. Í þessu ljósi getur því verið ástæða til að yfirfara núverandi sjálfbærnitengda spurningalista og gagnabeiðnir með hliðsjón af mörkum VS og mögulega öðrum lögum og reglum.
Fyrirtæki sem falla utan CSRD, hvort sem þau birta engar sjálfbærniupplýsingar, birta upplýsingar samkvæmt öðrum römmum, eða vilja þróa upplýsingagjöf sína frekar, ættu jafnframt að skoða hvort VS geti nýst til að samræma og staðla upplýsingagjöf sína. Sé upplýsingagjöfin samræmd getur það auðveldað upplýsingagjöf til banka, fjárfesta, viðskiptavina og annarra hagaðila og gert upplýsingarnar aðgengilegri og samanburðarhæfari milli fyrirtækja.
VS er því ekki bara enn einn nýr staðall fyrir skýrslugjöf heldur snýst hann um að samræma upplýsingagjöf og setja mörk á hversu langt má ganga í að kalla eftir sjálfbærniupplýsingum.
Höfundur er Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Arion banka.