Stjórn IcelandSIF leitar að einstaklingum sem starfa hjá aðildarfélögum eða aukaaðilum sem vilja taka þátt í starfi samtakanna. Starfræktir verða þrír hópar á vegum samtakanna starfsárið 2026-2027.
Viðburðahópur
Tilgangur hópsins er að skipuleggja og standa að fræðsluviðburðum samtakanna. Hópurinn tryggir að viðburðir séu faglegir, fræðandi og stuðli að tilgangi samtakanna.
Miðlunarhópur
Tilgangur hópsins er að miðla efni sem verður til á vettvangi samtakanna til félagsaðila með aðgengilegum hætti. Hópurinn styður viðburðahald samtakanna í samstarfi við stjórn og vinnuhópa.
Fræðsluhópur
Tilgangur hópsins er að efla þekkingu félagsaðila. Hópurinn útbýr hagnýtt fræðsluefni sem styður við upplýsta ákvarðanatöku í samræmi við tilgang samtakanna.
Stjórn samtakanna fór í stefnumótunarvinnu á síðasta ári og var breyting gerð á nöfnum og tilgangi vinnuhópanna frá fyrri árum sem felst í því að skerpa á verkefnum og ábyrgðarsviðum hópanna.
Vinnuhóparnir skipa mikilvægu hlutverki í starfi samtakanna en það er markmið stjórnar IcelandSIF að öflugir vinnuhópar efli umræður og fræðslu á vegum samtakanna og stuðli þannig að árangursríkri, faglegri og upplýsandi umfjöllun um sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar fyrir félagsaðila.
Hafir þú áhuga á að taka þátt í vinnuhópum IcelandSIF hvetjum við þig til að sækja um hér eða með því að senda tölvupóst á helena@icelandsif.is. Æskilegt er að með umsókn fylgi stutt kynning á umsækjanda. Reynsla á sviði sjálfbærni er kostur en alls ekki skilyrði.
Umsóknarfrestur er til og með 2. september næstkomandi.
Umsagnir
„Í gegnum starf fræðsluhóps IcelandSIF hef ég fengið að kynnast og vinna með mörgu frábæru og kláru fólki. Að taka þátt í fræðsluhópi IcelandSIF er góð leið til að efla tengslanetið og kynnast fleirum sem vilja efla umræður um sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar. Viðburðirnir sem fræðsluhópurinn skipuleggur eru ólíkir og því gefst mikið tækifæri til að fræðast um ólík málefni sem snerta sjálfbærar og ábyrgar fjárfestingar. Ég mæli því eindregið með því að öll áhugasöm taki þátt í starfi IcelandSIF til að miðla sinni þekkingu, læra nýja hluti og kynnast nýju fólki.“
– Diljá Eir Ólafsdóttir, sérfræðingur í áhættustýringu hjá Kviku
„Að taka þátt í miðlunarhópnum hefur verið einstaklega lærdómsríkt og gefandi bæði félagslega og faglega. Ég hef fengið að kynnast sjónarmiðum annarra aðildarfélaga og lært betur inn á miðlun upplýsinga í gegnum vef og samfélagsmiðla þegar við auglýsum viðburði og birtum efni. Ég mæli hiklaust með þátttöku í miðlunarhóp IcelandSIF.“
- Lilja Pálsdóttir, sérfræðingur í áhættustýringu hjá Íslandsbanka
„Það hefur verið virkilega áhugavert og fræðandi að taka þátt í starfi samtakanna. Ég hef kynnst mörgu öflugu og metnaðarfullu fólki sem deilir áhuga á mikilvægu málefni og hefur það verið mjög hvetjandi. Vinnuhóparnir hafa verið sérstaklega gagnlegir, bæði sem vettvangur til að skiptast á reynslu og læra af öðrum, en einnig til að fá ný sjónarhorn og hagnýtar hugmyndir sem nýtast í eigin starfi. Ég mæli eindregið með þátttöku fyrir alla sem hafa áhuga á að efla þekkingu sína, stækka tengslanetið sitt og taka þátt í uppbyggilegu samstarfi um mikilvægt samfélagsmál.“
- Saga Helgason