Stjórn IcelandSIF, kt. 461217-1330, Smáratorgi 3, 200 Kópavogi, boðar hér með til aðalfundar félagsins fyrir árið 2025.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 20. maí og hefst kl. 9.00.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir, sbr. 5. gr. samþykkta félagsins:
Tillögur sem félagsaðilar vilja leggja fyrir fundinn þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 16:00 miðvikudaginn 29. apríl nk.
Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 16:00 föstudaginn 15. maí nk.
Endanleg dagskrá og fram komnar tillögur munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun ávarpa fundargesti í upphafi fundar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar í húsakynnum Arion banka frá kl. 8:30.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar IcelandSIF
Arnar Sveinn Harðarson, stjórnarformaður