IcelandSIF stóð fyrir fyrsta staðfundi starfsársins þann 22. október s.l. í húsnæði Landsbankans þar sem fjallað var um helstu kröfur um sjálfbærni og sjálfbærniupplýsingagjöf sem gilda um fjármálafyrirtæki í dag. Sérfræðingar á viðkomandi sviðum gerðu grein fyrir gildandi reglugerðum, fyrirhuguðum breytingum á þeim og því hvernig best væri að undirbúa sig fyrir gildistöku þeirra.
Fram komu:
Við þökkum Halldóri, Hörpu og Margréti kærlega fyrir framlag sitt í umræðuna um stöðuna á sjálfbærniregluverki í dag.
Upptaka af erindunum má finna hér
Hér að neðan má lesa samantekt af erindum ásamt ljósmyndum af viðburðinum.
Nýlegar breytingar á upplýsingagjöf fjármálafyrirtækja
Halldór I. Pálsson fjallaði um Omnibus-breytingarnar og einföldun á sjálfbærniupplýsingagjöf fjármálafyrirtækja. Hann benti á að fyrirtæki þyrftu áfram að uppfylla gildandi kröfur samkvæmt NFRD og flokkunarreglugerðinni þar til CSRD tæki við. Hann lagði jafnframt áherslu á að upplýsingagjöfin yrði í auknum mæli markaðsdrifin og að fjárfestar, lánveitendur og viðskiptavinir gegndu stærra hlutverki við að móta upplýsingakröfur.
Sjálfbærnireikningsskil á Íslandi: biðin, breytingarnar og næstu skref
Harpa Theodórsdóttir fór yfir stöðu innleiðingar CSRD á Íslandi og væntanlegar breytingar. Fram kom að frumvarp væri boðað í febrúar 2027 en fyrsta íslenska skýrsluárið lægi ekki fyrir. Þrátt fyrir einföldun stæðu lykilþættir regluverksins áfram, meðal annars tvíþátta mikilvægi og ábyrgð stjórnar.
Gildandi kröfur um sjálfbærniskýrslugjöf og SFDR innan ESB
Margrét Helga Guðmundsdóttir fjallaði um gildandi kröfur um sjálfbærniskýrslugjöf, einföldun ESRS-staðlanna og valfrjálsa VSME-rammann fyrir minni fyrirtæki. Þá kynnti hún tillögur að breytingum á SFDR og lagði áherslu á skýra, mælanlega upplýsingagjöf sem tengdist rekstri félaga.