Ný stjórn IcelandSIF kjörin og myndir frá aðalfundi

30/06/2026

Ný stjórn IcelandSIF var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fór fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, þann 20. maí síðastliðinn.

Nýja stjórn skipa:

  • Ása I. Róbertsdóttir, sjóðstjóri hjá TM
  • Heiðrún Hödd Jónsdóttir, sjálfbærnisérfræðingur hjá LSR
  • Helena Guðjónsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar og sjálfbærni hjá Íslandssjóðum
  • Jóhanna K. Claessen, lögfræðingur og persónuverndarfulltrúi hjá Landsbankanum
  • Kristján Andrésson, forstöðumaður rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka
  • Per Matts Henje, sjóðsstjóri hjá Stefni
  • Tómas N. Möller, yfirlögfræðingur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Arnar Sveinn Harðarson frá Arion banka, Kristín Halldórsdóttir frá Íslandsbanka og Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir frá Landsbankanum gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og nýkjörin stjórn þakkar þeim fyrir sig framlag til samtakanna síðustu ár.

Helena Guðjónsdóttir tekur við af Arnari sem stjórnarformaður og verður Heiðrún Hödd Jónsdóttir varaformaður.

Helena, nýkjörinn formaður segir: „Ég vil þakka fráfarandi stjórnarmönnum kærlega fyrir þeirra mikilvæga framlag í starfi IcelandSIF og um leið býð ég nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna. Það er ánægjulegt að sjá sterkan hóp taka við keflinu og halda áfram að þróa starfsemi samtakanna.“ Hún hlakkar til komandi starfsárs og telur að „vettvangur samtakanna sé sérstaklega mikilvægur fyrir komandi ár og stefnum við að því að halda áfram að skapa fræðslu og umræðu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.“

Stjórn þakkar einnig Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir komu á aðalfundinn og athyglisvert erindi.

Glærur frá fundinum.


Hér að neðan má sjá myndir af fundinum.