IcelandSIF minnir á næsta viðburð samtakanna sem haldinn verður miðvikudaginn 11. nóvember kl. 9:00 í húsnæði Arion banka þar sem fjallað verður um gervigreind og sjálfbærar fjárfestingar.
Markmið fundarins er að greina m.a. frá:
- Hvað felst í ábyrgri innleiðingu og notkun gervigreindar, meðal annars hvað varðar gagnaöryggi, persónuvernd og umhverfismál,
- Hvernig fjármálafyrirtæki geta nýtt gervigreind til að styðja við sjálfbærnivegferð sína.
Fram koma:
- Tate Cantrell, tæknistjóri (CTO) hjá Verne
- Brynhildur Ýr Ottósdóttir, öryggisstjóri LSR og sérfræðingur í netöryggi hjá Fjarskiptastofu
- Sveinn Sigurður Jóhannesson, framkvæmdastjóri og stofnandi Greenfish
- Jónas R. Gunnarsson, forstöðumaður sjóðastýringar hjá Kviku eignastýringu
Fundurinn er opinn aðildarfélögum IcelandSIF.
Skráning á viðburð hér.