Viðburður í næstu viku: Sjálfbærniregluverk – hvar stöndum við í dag?

16/10/2026

IcelandSIF minnir á fyrsta viðburð haustsins í næstu viku, fimmtudaginn 22. október kl. 9:00 í húsnæði Landsbankans. Á viðburðinum verður fjallað um nýlegar vendingar í sjálfbærniregluverki á Íslandi og gildandi kröfur um sjálfbærniupplýsingagjöf, m.a. flokkunarreglugerðina, CSRD og SFDR. Húsið opnar kl. 8:30 og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Markmið fundarins er að greina frá helstu kröfum um sjálfbærni og sjálfbærniupplýsingagjöf sem gilda um fjármálafyrirtæki í dag á skýran og hagnýtan hátt.

Á fundinum verða erindi frá eftirfarandi aðilum:

  • Halldór I. Pálsson, umsjónarmaður með ársreikningaskrá ríkisskattstjóra hjá Skattinum, mun fjalla um nýlegar breytingar á flokkunarreglugerðinni (EU Taxonomy)
  • Harpa Theodórsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu viðskipta og markaða hjá Atvinnuvegaráðuneytinu, mun fjalla um stöðu innleiðingar CSRD á Íslandi
  • Margrét Helga Guðmundsdóttir, liðsstjóri og leiðtogi sjálfbærniráðgjafar Deloitte, mun fjalla um gildandi kröfur í sjálfbærniskýrslum og SFDR

Að erindum loknum gefst tími fyrir spurningar. Við viljum hvetja gesti til að senda inn þær spurningar sem þau kunna að hafa hér.

Fundurinn er opinn aðildarfélögum IcelandSIF.

Skráning á viðburð hér.