Í október kom út sjöunda útgáfa Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem tekur gildi 1. janúar 2027. Í greininni fjallar Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands, um helstu breytingar á leiðbeiningunum, meðal annars hvað varðar óhæði stjórnarmanna, sjálfbærni, upplýsingagjöf og aukinn sveigjanleika fyrirtækja. Sérstaklega er horft til þýðingar breytinganna fyrir fjárfesta og mikilvægis gagnsæis, ábyrgðar og áreiðanlegrar upplýsingagjafar við mat á stjórnarháttum fyrirtækja.
Hvað felst í nýjum leiðbeiningum um stjórnarhætti?
Góðir stjórnarhættir eru ein af forsendum þess að fjárfestar geti lagt upplýst mat á starfsemi fyrirtækja, áhættu þeirra og framtíðarhorfur. Skýr ábyrgðarskipting, sjálfstætt eftirlit stjórnar og áreiðanleg upplýsingagjöf skipta þar miklu máli.
Í október kom út sjöunda útgáfa Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland standa að. Leiðbeiningarnar taka gildi 1. janúar 2027 og byggja sem fyrr á meginreglunni „fylgið eða skýrið“.
Við undirbúning útgáfunnar var leitað sjónarmiða fyrirtækja og annarra hagaðila. Meginniðurstaðan var að leiðbeiningarnar hefðu almennt reynst vel og ekki væri þörf á umfangsmiklum efnisbreytingum. Áherslan var því lögð á einfaldari framsetningu, skýrari tilmæli og aukinn sveigjanleika, fremur en að fjölga kröfum til fyrirtækja.
Gagnsæi, óhæði og aukinn sveigjanleiki
Meðal breytinga sem hafa sérstaka þýðingu fyrir fjárfesta eru skýrari viðmið um óhæði stjórnarmanna. Nú er gerður skýrari greinarmunur á óhæði gagnvart félaginu og daglegum stjórnendum annars vegar og stórum hluthöfum hins vegar. Gagnsæi um slík tengsl auðveldar fjárfestum að meta samsetningu stjórnar og mögulega hagsmunaárekstra.
Við endurskoðunina urðu jafnframt umræður um stöðu og samsetningu tilnefningarnefnda, einkum þátttöku stjórnarmanna í þeim. Annars vegar komu fram sjónarmið um hættu á hagsmunaárekstrum og áhrif á sjálfstæði nefndanna, en hins vegar var bent á að þekking stjórnarmanna á starfsemi, þörfum og samsetningu stjórnar gæti nýst við störf þeirra. Í nýju útgáfunni voru felld brott sérstök tilmæli um að stjórnarmaður ætti ekki að gegna formennsku í tilnefningarnefnd.
Breytingin felur þó ekki í sér meðmæli með slíku fyrirkomulagi. Þvert á móti er í skýringartexta bent á að formennska stjórnarmanns kunni að vera óheppileg við tilteknar aðstæður. Markmiðið er að veita félögum svigrúm til að meta hvaða fyrirkomulag henti þeim best, meðal annars með hliðsjón af eignarhaldi, stjórnskipulagi og hættu á hagsmunaárekstrum. Sjálfstæði og trúverðugleiki nefndarinnar þarf eftir sem áður að vera leiðarljós við það mat.
Einnig hafa viðmið um þátttöku daglegra stjórnenda í stjórnum verið skýrð. Meginviðmiðið er áfram að að hámarki einn stjórnarmaður sé daglegur stjórnandi, en í fjölmennari stjórnum kunni að vera málefnalegt að víkja frá þeim tilmælum, að því gefnu að daglegir stjórnendur séu ekki fleiri en fimmtungur stjórnarmanna og sjálfstætt eftirlitshlutverk stjórnar sé tryggt.
Sjálfbærni og markvissari upplýsingagjöf
Sjálfbærni og loftslagsmál hafa fengið aukið vægi í stjórnun fyrirtækja og við ákvarðanatöku fjárfesta á undanförnum árum. Samhliða hefur regluverk um sjálfbærniupplýsingagjöf tekið breytingum og frekari breytingar eru í farvatninu.
Í nýju leiðbeiningunum er áfram lagt til að stjórn setji stefnu um sjálfbærnimál félagsins. Nýmæli er hins vegar að sérstaklega er tekið fram að félag ætti að móta leiðir til að tryggja eftirfylgni við stefnuna. Þá er lögð áhersla á að stjórn tryggi að þeir sjálfbærniþættir sem félagið metur mikilvæga fyrir starfsemi sína séu teknir til skoðunar við stefnumótun, áhættustjórnun, innra eftirlit og upplýsingagjöf. Þannig er áherslan ekki aðeins á að móta stefnu heldur einnig að hún hafi raunverulega þýðingu fyrir starfsemi og stjórnun félagsins.
Við endurskoðunina var ekki farin sú leið að bæta við sértækum tilmælum um sjálfbærni, heldur var lögð áhersla á að félög gætu tekið mið af eigin starfsemi við mat á því hvaða sjálfbærniþættir skipta mestu máli. Jafnframt var leitast við að draga úr tvíverknaði í upplýsingagjöf sem eldri útgáfa leiðbeininganna gat haft í för með sér. Félög geta því, eftir því sem við á, vísað til sjálfbærniupplýsinga sem þegar hafa verið birtar annars staðar í stað þess að endurtaka þær í stjórnarháttayfirlýsingu. Þannig er leitast við að tryggja gagnsæi án þess að auka umfang upplýsingagjafar að óþörfu.
Áreiðanleg upplýsingagjöf
Önnur breyting sem skiptir fjárfesta máli snýr að hlutverki endurskoðunarnefndar. Við endurskoðunina var skerpt á því að nefndin eigi að leggja mat á hvort upplýsingagjöf félagsins sé áreiðanleg og viðeigandi og gefi sem skýrasta mynd af rekstri, fjárhagsstöðu og horfum þess.
Með þessu er lögð áhersla á eftirlits- og matshlutverk nefndarinnar, fremur en að gera kröfu um að hún staðreyni upplýsingar sjálfstætt. Fyrir fjárfesta skiptir enda ekki aðeins máli hversu miklar upplýsingar félög birta, heldur að þær séu áreiðanlegar og varpi ljósi á þau atriði sem hafa raunverulega þýðingu.
Sveigjanleiki með ábyrgð
Ein veigamesta breyting nýju útgáfunnar er að tilmæli eru almennt orðuð með „ætti“ í stað „skal“. Markmiðið er að undirstrika leiðbeinandi eðli þeirra og greina þau skýrar frá bindandi lagakröfum.
Breytingin felur þó ekki í sér að félög geti vikið frá tilmælum án skýringa. Meginreglan „fylgið eða skýrið“ stendur óbreytt en hefur verið skýrð nánar í inngangi leiðbeininganna. Félög sem lýsa því yfir að þau fylgi leiðbeiningunum þurfa því annaðhvort að fylgja einstökum tilmælum eða gera skilmerkilega grein fyrir frávikum.
Fyrir fjárfesta er þetta mikilvægt. Fyrirtæki eru ólík og sama fyrirkomulag hentar ekki öllum. Vel rökstutt frávik getur samrýmst góðum stjórnarháttum, enda séu skýringar nægilega greinargóðar til að fjárfestar geti metið fyrirkomulagið.
Góðir stjórnarhættir eru meira en gátlisti
Leiðbeiningarnar skapa sameiginleg viðmið sem auðvelda fjárfestum samanburð á stjórnarháttum fyrirtækja án þess að útiloka mismunandi útfærslur. Góðir stjórnarhættir felast enda ekki aðeins í því að fylgja tilmælum heldur að skilja tilgang þeirra og beita þeim af skynsemi.
Nýja útgáfu leiðbeininganna, yfirlit yfir breytingar og eldra útgáfuefni má nálgast á leidbeiningar.is.
Höfundur er Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands.