Aðalfundur IcelandSIF

Aðalfundarboð

Reykjavík, 27. apríl 2023

Stjórn IcelandSIF, kt. 461217-1330, Smáratorgi 3, 200 Kópavogi, boðar hér með til aðalfundar félagsins fyrir árið 2022.

Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Kviku banka, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 25. maí og hefst kl. 9:00.

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir, sbr. 5. gr. samþykkta félagsins:

  1. Kosning fundarstjóra
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
  5. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna
  6. Kosning stjórnar
  7. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns
  8. Ákvörðun félagsgjalds
  9. Tillögur að breytingum á samþykktum, ef þær liggja fyrir
  10. Önnur mál

Tillögur sem félagsaðilar vilja leggja fyrir fundinn þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 9:00 miðvikudaginn 4. maí.

Tilkynningar um framboð til stjórnar þurfa að berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 16:00 laugardaginn 20. maí eða fimm dögum fyrir aðalfundardagsetningu.

Endanleg dagskrá og fram komnar tillögur munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.

Boðið verður upp á kaffiveitingar í húsakynnum Kviku banka frá kl. 8:30.

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar IcelandSIF

Kristbjörg M. Kristinsdóttir

Stjórnarformaður

25maí
Tímasetning
08:30 - 10:00
Staðsetning

Kvika banki,
Katrínartúni 2,
105 Reykjavík

Skráning opnar:

kl. 10:00 27/04/2023

Skráning endar:

kl. 09:00 25/05/2023