Öryggi, persónuvernd og vefkökur

Þegar þú notar vef IcelandSIF verða til upplýsingar um heimsóknina. 

IcelandSIF notar svokallaðar vafrakökur (e. cookies) í því skyni að gera vefinn betri og aðgengilegri fyrir notendur og til að auka þjónustustig. Til að upplifa alla þá eiginleika sem vefurinn hefur upp á að bjóða er mikilvægt að vafrinn samþykki vafrakökur.

Við notum vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefsvæði vistar á tölvunni eða snjalltækinu þínu þegar þú heimsækir vefi. Vafrakökur gera okkur kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og muna stillingar notandans yfir ákveðinn tíma.

Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. 

IcelandSIF notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Vefurinn not­ast við SSL skil­ríki þannig að öll sam­skipti sem send eru milli not­anda og vefs eru dulkóðuð sem eykur ör­yggi gagna­flutn­ings­ins. SSL skilríki varna því að utanaðkomandi aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. 

Á vefnum er hægt að hafa samband við IcelandSIF með því að fylla út fyrirspurnarform. Erindið berst til umsjónaraðila vefsins sem svarar erindinu. Afrit af erindunum eru vistuð í vefumsjónarkerfinu og geymd að hámarki í eitt ár.

Á vef IcelandSIF er stundum vísað á vefi annarra stofnana og fyrirtækja. Reglur IcelandSIF um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. IcelandSIF ber ekki ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika slíkra vefja. Vísunin þýðir heldur ekki að IcelandSIF styðji eða aðhyllist nokkuð sem þar kemur fram.

Þó að leitast sé við að hafa upplýsingar á vefnum réttar og í samræmi við nýjustu stöðu mála er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Þetta á einnig við um tilvísanir og tengla í efni utan vefsins.

Hér er hægt að nálgast persónuverndarstefnu IcelandSIF sem samþykkt var í apríl 2023.