Aðalfundur IcelandSIF

Stjórn IcelandSIF, kt. 461217-1330, Smáratorgi 3, 200 Kópavogi, boðar hér með til aðalfundar ársins 2018, sem haldinn verður að heimili félagsins, 9. hæð, miðvikudaginn 18. apríl n.k. og hefst hann kl. 14:00.

Dagskrá aðalfundar, sbr. 5. gr. samþykkta félagsins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar lögð fram.

3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.

4. Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

5. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
a) Tillaga um að ekki verði greidd stjórnarlaun

6. Kosning stjórnar.

7. Kosning endurskoðanda/skoðunarmanns.
a) Tillaga er um að Deloitte ehf. kt. 521098-2449, verði kjörið endurskoðandi félagsins.

8. Ákvörðun félagsgjalds.
a) Tillaga er um að félagsgjald verði óbreytt.

9. Tillögur að breytingum á samþykktum, ef þær liggja fyrir.

10. Önnur mál

Tillögur um framboð til stjórnar þurfa að berast í tölvupósti eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 13:00 föstudaginn 13. apríl n.k.  

Allar aðrar tillögur sem félagsaðilar vilja að teknar verði fyrir á aðalfundi þurfa að berast í tölvupósti eða með öðrum skriflegum hætti og sendar stjórn félagsins í síðasta lagi fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 28. mars n.k.

Endanleg dagskrá og fram komnar tillögur munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. 

Að aðalfundarstörfum loknum mun Kristín Jóna Kristjánsdóttir formaður vinnuhóps um upplýsingagjöf og fræðslu um ábyrgar fjárfestingar gera grein fyrir vinnu hópsins og því sem er framundan. 

Virðingarfyllst,

f.h. stjórnar IcelandSIF

Hrefna Ö. Sigfinnsdóttir, stjórnarformaður


18apr
Tímasetning
14:00 - 16:00
Staðsetning

Fundarboð með hlekk á viðburðinn verður sendur í tölvupósti á skráða aðila, daginn fyrir fundinn.

Þátttökugjald
0 kr.
Skráning opnar:

kl. 10:00 26/01/2018

Skráning endar:

kl. 16:00 17/04/2018