NordicSIF viðburður: Biodiversity – Five countries, Five perspectives

19/10/2026

IcelandSIF vekur athygli á viðburði á vegum NordicSIF þann 3. nóvember 2026 sem er opinn aðildarfélögum IcelandSIF. Þar verður fjallað um líffræðillega fjölbreytni og hvernig norrænir fjárfestar vinna með náttúrutengda áhættu í fjárfestingum sínum.

Á fundinum verða kynnt fimm ólík sjónarhorn á líffræðilega fjölbreytni þar sem fulltrúar frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð munu fjalla um hvernig fjárfestar nálgast líffræðilega fjölbreytni og náttúrutengda áhættu. Fulltrúarnir munu einnig miðla reynslu sinni og varpa ljósi á áherslur og hagnýtar aðferðir við að samþætta þessa þætti í fjárfestingarákvarðanir.

Viðburðurinn er tækifæri til að kynnast ólíkum nálgunum á Norðurlöndunum, læra af reynslu annarra fjárfesta og ræða sameiginlegar áskoranir og tækifæri sem tengjast samþættingu nátturutengdra þátta í fjárfestingarstarfsemi.

Skráning og frekari upplýsingar má finna hér.