IcelandSIF stendur fyrir viðburði í samstarfi við Utanríkisráðuneytið og Íslandsstofu þann 13. janúar 2025 kl. 15:00-16:30.
Viðburðurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Landsbankans að Reykjastræti 6 og að honum loknum verða léttar veitingar í boði.
Íslenska ríkið varð aðili að aðgerðabandalagi um örvun fjárfestinga í þróunarríkjum (IMCA | WCF) í nóvember 2024, en um er að ræða samstarf Norðurlandanna og Bandaríkjanna um blendingsfjármögnun (e. blended finance) sem er ætlað að hraða grænum fjárfestingum í verkefnum í þróunarríkjum, einkum á sviði orku- og loftslagsmála.
Samstarfið miðar að því að nýta opinbert þróunarfé til að taka fyrstu áhættu (e. first loss) af fjárfestingum og gera þau þannig að álitlegum fjárfestingakosti fyrir einkageirann, t.d. lífeyrissjóði og aðra fagfjárfesta. Með þeim hætti er einkageiranum gert kleift að fjárfesta í verkefnum sem annars teldust of áhættusöm.
Á fundinum munu fulltrúar frá IMCA vera með erindi og kynna samtökin ásamt því að svara spurningum.
Dagskrá fundarins:
Opnun fundarins: Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins.
Dewi Dylander og Jesper H. Andersen frá IMCA munu vera með eftirfarandi erindi og kynna IMCA samtökin ásamt því að svara spurningum. Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.
Við bendum á að áhugasömum aðilum gefst einnig færi á að bóka viðtöl við Dewi Dylander og Jesper H. Andersen frá IMCA fyrir hádegi 14. janúar. Vinsamlegast hafið samband við svanhvit@mfa.is til þess að bóka viðtal.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar um IMCA.
Athugið að fundurinn er ekki eingöngu fyrir aðildarfélög.
Höfuðstöðvar Landsbankans, Reykjastræti 6
kl. 12:00 16/12/2024
kl. 08:00 13/01/2025