Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar IcelandSIF

7/05/2024

Endanlegar tillögur stjórnar til aðalfundar IcelandSIF þann 22. maí 2024 liggja nú fyrir.

Aðalfundur IcelandSIF verður haldinn í höfuðstöðvum Íslandsbanka, Hagasmára 3, 201 Kópavogi, 9. hæð, miðvikudaginn 22. maí og hefst fundurinn kl. 9:00. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá klukkan 8:30.

Bent er á að framboð til stjórnar skulu berast í tölvupósti á netfangið icelandsif@icelandsif.is eða með öðrum skriflegum hætti til stjórnar félagsins, í síðasta lagi kl. 9:00 föstudaginn 17. maí.

Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum mun Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpa fundargesti og fjalla um áherslur og markmið ríkisstjórnar Íslands í umhverfis- og loftslagsmálum.

Hér er að finna skráningu á fundinn

Endanlegar tillögur stjórnar eru aðgengilegar hér

Ársreikningur IcelandSIF 2023 án endurskoðunar eða könnunar

Stofnsamþykktir IcelandSIF