Fjarfundur um PRI skýrslugjöf 2021

25/02/2021

IcelandSIF býður aðildarfélögum á morgunfund (fjarfund) 2. mars frá kl. 9:00-10:00 þar sem fjallað verður um PRI skýrslugjöf 2021.

Yulia Sofronova frá PRI mun kynna breytingar á umgjörð fyrir skýrslugerð samtakanna og hvað þýðir fyrir aðildarfélaga að PRI í tengslum við skýrsluskil fyrir árið 2021. Farið verður nánar yfir:

  • Helstu breytingar á skýrslusniði og yfirlit yfir einstaka þætti
  • Uppfærða aðferðafræði við mat einstakra þátta
  • Hvernig á að tengjast og nota nýja skýrslugerðargrunninn

Póstur með tengil á fundinn verður sendur út á skráða aðila daginn fyrir fund.