Viltu taka þátt í vinnuhópum IcelandSif?

29/08/2022

Stjórn IcelandSIF sem kjörin var á aðalfundi samtakanna í leitar að einstaklingum sem starfa hjá aðildarfélögum eða aukaaðilum sem vilja taka þátt í starfi samtakanna.

Starfræktir eru þrír hópar á vegum samtakanna sem munu starfa árið 2022-2023

Fræðslu og upplýsingahópur

Tilgangur hópsins er að standa að faglegri og aðgengilegri fræðslu um ábyrgar fjárfestingar. Hópurinn skipuleggur viðburði í samstarfi við miðlunarhóp m.a. um ábyrgar fjármálaafurðir og tekur virkan þátt í samstarfi við innlenda og erlenda háskóla og samstarfsaðila.

Miðlunarhópur

Tilgangur hópsins er að miðla efni sem verður til á vettvangi samtakanna til félagsaðila með aðgengilegum hætti meðal annars í gegnum samfélagsmiðla. Hópurinn skipuleggur viðburði í samstarfi við stjórn og aðra vinnuhópa innan samtakanna.

Lögfræðihópur

Tilgangur hópsins er að taka saman og miðla efni sem tengist núverandi og framtíðarlöggjöf á sviði sjálfbærni og ábyrgra fjárfestinga sem snerta félagsaðila með einum eða öðrum hætti. Hópurinn skipuleggur viðburði í samstarfi við miðlunarhóp samtakanna.

Það er markmið stjórnar IcelandSIF að með starfrækslu öflugra vinnuhópa að þekking og umræður á sviði ábyrgra fjárfestinga verði árangursrík, fagleg og upplýsandi fyrir félagsaðila.

Hafir þú áhuga á að taka þátt í starfinu hafðu samband hér. Skipað verður í vinnuhópa þann 2. september n.k.