Fjarfundur IcelandSIF - Orkumál í brennidepli

19/04/2022

Á morgunfundi IcelandSIF fimmtudaginn 28. apríl 2022 kl. 9:00 – 10:00 sem haldinn verður á Teams verður fjallað um orkumál, orkuskort og áhrif af stríðsátökum í Austur-Evrópu á orkuskiptin og þróun yfir í sjálfbæra orkugjafa.

Sigurður Ingi Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs hjá Orkustofnun og Þórdís Anna Oddsdóttir forstöðumaður fjárstýringar hjá Landsvirkjun munu í erindum sínum fjalla um orkumálin sem eru í brennidepli þessa dagana. Fundarstjóri er Reynir Smári Atlason, forstöðumaður sjálfbærnimála hjá Creditinfo og stjórnarmeðlimur í IcelandSIF.

Skráning á fundinn er á heimasíðu IcelandSIF.

Fundurinn verður haldinn á Teams, fundarhlekkur verður sendur á skráða aðila fyrir fundinn.