Hvað þarf til að lagareldi sé sjálfbært á Íslandi?

22/10/2025

IcelandSIF stendur fyrir morgunfundi um sjálfbærni í fiskeldi miðvikudaginn 12. nóvember næstkomandi frá kl. 9:00 til 10:15 í húsnæði Arion banka Borgartúni 19. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar frá kl. 8:30.

Skráning á viðburðinn fer fram hér

Íslenskt fiskeldi stendur á tímamótum þar sem sjálfbærni, nýsköpun og samfélagsleg ábyrgð eru í forgrunni. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í greininni undanfarin ár og hefur umræðan um jákvæð áhrif hennar á störf á landsbyggðinni aukist samhliða umræðum um möguleg neikvæð umhverfisáhrif greinarinnar.

Á þessum viðburði rýnum við í hvernig hægt er að þróa fiskeldi með ábyrgum hætti þar sem náttúran, samfélagið og hagkerfið vinna saman. Viðburðurinn dregur saman fulltrúa atvinnulífsins, vísinda og fjármála til að ræða tækifæri Íslands til að verða fyrirmynd í lagareldi og mikilvægi samvinnu hagsmunaaðila til að tryggja trausta framtíð greinarinnar.

Á viðburðinum verður lögð áhersla á:

  • Nauðsynlegar aðgerðir og kröfur sem þarf að uppfylla til þess að tryggja að neikvæð umhverfisáhrif séu milduð í fiskeldi
  • Þróun fiskeldis á Íslandi næstu 5 árin
  • Tækifæri Íslands til að verða fyrirmynd í sjálfbæru lagareldi
  • Samstarf vísinda, stjórnvalda og atvinnulífs til að tryggja trausta framtíð greinarinnar

Frekari dagskrá verður birt síðar.

Fundurinn er opinn fyrir aðildarfélög IcelandSIF.

Athugið að fundurinn verður ekki tekinn upp.