NordicSIF ráðstefnan árið 2025 verður að þessu sinni haldin í Stokkhólmi 4. og 5. júní næstkomandi í boði SweSIF samtakanna. Það eru ennþá örfá pláss eftir og hvetjum við starfsmenn aðildarfélaga að skrá sig, en skráning er opin til og með 20. maí.
Dagskrá ráðstefnunnar og skráning er aðgengileg hér.
Ráðstefnan er að þessu sinni leggur áherslu á "framtíð mannkynsins".
NordicSIF ráðstefnan er mikilvægur árlegur viðburður þar sem saman koma meðlimir Dansif, Finsif, Swesif, Icelandsif og Norsif. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir norræna fjárfesta til að skiptast á hugmyndum og vinna saman að því að takast á við áskoranir í tengslum við ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.