Minnum á NordicSIF 2026

16/03/2026

Opnað hefur verið fyrir skráningar á NordicSIF ráðstefnuna 2026, sem haldin verður í Helsinki þann 25. ágúst 2026. Viðburðurinn er í boði FINSIF – Finland’s Sustainable Investment Forum og ber yfirskriftina Nordic Edge: Shaping the Future of Investing.

Starfsmenn aðildarfélaga IcelandSIF geta skráð sig á viðburðinn. Þar sem gestafjöldi er oft takmarkaður eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst.

Dagsetning: Þriðjudagur 25. ágúst 2026

Tími: 8:00–19:00 (GMT+3)

Staðsetning: Helsinki

Dagskrá ráðstefnunnar og skráning er aðgengileg hér.

NordicSIF ráðstefnan er árlegur vettvangur þar sem saman koma meðlimir DanSIF, FinSIF, IcelandSIF, NorSIF og SweSIF. Markmið hennar er að efla samstarf norrænna fjárfesta og stuðla að umræðu um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.