Ný stjórn IcelandSIF kjörin – myndir frá aðalfundi

2/06/2025

Ný stjórn IcelandSIF var kjörin á aðalfundi samtakanna sem fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans, Reykjastræti 6, þann 15. maí síðastliðinn.

Nýja stjórn skipa:

  • Arnar Sveinn Harðarson, lögfræðingur hjá Arion banka,
  • Heiðrún Hödd Jónsdóttir, sjálfbærnisérfræðingur hjá LSR,
  • Helena Guðjónsdóttir, deildarstjóri viðskiptaþróunar og sjálfbærni hjá Íslandssjóðum,
  • Kristín Halldórsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu Íslandsbanka,
  • Per Matts Henje, sjóðstjóri hjá Stefni,
  • Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir, viðskiptastjóri í fagfjárfestaþjónustu Landsbankans og
  • Þráinn Halldórsson, sérfræðingur í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.

Arnar Sveinn Harðarson er áfram stjórnarformaður IcelandSIF. Helena Guðjónsdóttir er nýr varaformaður.

Halla Kristjánsdóttir frá LSR gaf ekki kost á sér til endurkjörs og nýkjörin stjórn þakkar henni kærlega fyrir sitt framlag til samtakanna síðustu ár.

Stjórn þakkar einnig Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fyrir komu á aðalfundinn og athyglisvert erindi.

Glærur frá fundinum.


Hér að neðan má sjá myndir af fundinum.