Opnað hefur verið fyrir skráningar á NordicSIF ráðstefnuna 2026.
NordicSIF ráðstefnan árið 2026 verður að þessu sinni haldin í Helsinki þann 25. ágúst 2026 n.k. í boði FINSIF samtakanna undir yfirskriftinni Nordic Edge: Shaping the Future of Investing.
Starfsmenn aðildarfélaga IcelandSIF geta skráð sig á viðburðinn. Gestafjöldi er oftast takmarkaður þannig að áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Dags: þriðjudagur, 25. ágúst 2026
Tími: 8:00-19:00
Staðsetning: Helsinki
Dagskrá ráðstefnunnar og skráning er aðgengileg hér.
NordicSIF ráðstefnan er mikilvægur árlegur viðburður þar sem saman koma meðlimir Dansif, Finsif, Swesif, Icelandsif og Norsif. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir norræna fjárfesta til að skiptast á hugmyndum og vinna saman að því að takast á við áskoranir í tengslum við ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.