IcelandSIF stóð fyrir morgunfundi um sjálfbærniáhættur á fjármálamarkaði fimmtudaginn 28. ágúst s.l. í húsnæði LIVE, Kringlunni 7.
Á viðburðinum var lögð áhersla á að rýna þær aðferðir sem aðilar á fjármálamarkaði nota við mat á sjálfbærniáhættum. Fjallað verður um það hvort, og þá hvernig, matsferlið geti verið virðisaukandi, m.a. fyrir sjálft fjárfestingaferlið.
Ýmis vandkvæði og áskoranir fylgja innleiðingu á sjálfbærniáhættum í matsferlið, þar á meðal mat á fjárhagslegu mikilvægi, aðferðir til að verðleggja ólíkar áhættur, gagnaöflun o.fl. Engar tvær leiðir eru eins og ólíkir aðilar á fjármálamarkaði nota ólíkar aðferðir sem falla að þeirra starfsemi til að meta sjálfbærniáhættur.
Við fengum til okkar sérfræðinga sem héldu eftirfarandi erindi: