Umhverfisvottanir bygginga: samantekt, glærur og myndir

9/04/2026

IcelandSIF stóð fyrir staðfundi um umhverfisvottanir fasteigna þriðjudaginn 24. mars s.l. í húsnæði Heima.

Markmið fundarins var að ná heildstætt utan um vottanir fasteigna m.t.t. ábata og kostnaðar. Fjallað var um viðfangsefnið frá sjónarhorni ólíkra hagaðila til að reyna að fá sem heildstæðustu sýnina.

Fyrirlesarar voru eftirfarandi:

  • María Rúnarsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni, Heimar
  • Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun
  • Kristian Berg, meðeigandi hjá Arctic Securities

Hér að neðan má lesa samantekt af kynningunum. Einnig má finna glærur og ljósmyndir.

Sjálfbær fasteignarekstur: vottanir og orkunýtnivottorð í breyttu fjármögnunarumhverfi

Kynning Maríu fjallaði um sjálfbæran fasteignarekstur hjá Heimum með áherslu á vottanir, orkunýtingu í eignasafni og breytt fjármögnunarumhverfi. Félagið hefur á undanförnum árum unnið markvisst eftir sjálfbærnistefnu þar sem BREEAM vottanir og græn fjármögnun gegna lykilhlutverki. Lögð hefur verið sérstök áhersla á bætta nýtingu auðlinda, meðal annars með snjallmælingum á orkunotkun og snjallsorpslausnum sem hafa stuðlað að aukinni flokkun og sanngjarnari kostnaðarskiptingu meðal leigutaka.

Stefna félagsins felur í sér þróun svokallaðra kjarnasvæða þar sem búseta, vinna og þjónusta eru samþætt til að draga úr kolefnisspori og auka lífsgæði. Græn fjármögnun er orðin mikilvægur hluti af starfseminni og nam um 40% heildarfjármögnunar ársins 2025. Umhverfisvottaður hluti eignasafnsins er svo um 42%. Vottanir og orkunýtnivottorð verða sífellt mikilvægari, sérstaklega í tengslum við fjármögnun og kröfur EU Taxonomy. Framtíðarsýn félagsins felur í sér áframhaldandi uppbyggingu sjálfbærra svæða ásamt markmiðum um aukna vottun og græna fjármögnun.

Glærur -Heimar

Svansvottun bygginga: sjálfbærni og gæði sem fjárfesting

Kynning Bergþóru fjallaði um Svansvottun bygginga og tengingu hennar við sjálfbærni, gæði fasteigna og fjárfestinga. Farið var yfir hlutverk Norræna umhverfismerkisins Svansins sem alþjóðlega viðurkennt vottunarkerfi sem auðveldar bæði neytendum og framleiðendum að taka umhverfisvænni ákvarðanir. Þá fór Bergþóra einnig yfir helstu viðmið Svansins fyrir nýbyggingar, endurbætur og rekstur fasteigna, þar sem áhersla er lögð á orkunýtingu, losun gróðurhúsalofttegunda, efnisval, hringrásarhagkerfið, líffræðilegan fjölbreytileika og gæði innivistar.

Einnig var fjallað um hvaða tegundir bygginga geta hlotið Svansvottun og hvernig kröfurnar ná bæði til byggingarinnar sjálfrar og tengdra mannvirkja. Farið var yfir ströng viðmið sem lúta meðal annars að efnisvali, loftgæðum, raka, hljóðvist og öðrum þáttum sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan notenda. Þá var útskýrt hvernig vottunin byggist á samspili skyldukrafna og valkvæðra stiga sem stuðla að auknum gæðum fasteigna.

Kynningin tók jafnframt á helstu hvötum fyrir Svansvottun, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum, svo sem í gegnum græna fjármögnun, afslætti, markaðssetningu og aukna eftirspurn eftir sjálfbærum lausnum. Að lokum var dreginn fram ávinningur vottunarinnar, sem meðal annars felst í minni orkunotkun, lægra kolefnisspori, bættri nýtingu byggingarefna og auknum gæðum innivistar, sem gerir Svansvottaðar byggingar að eftirsóknarverðum kosti fyrir fjárfesta og notendur.

Glærur -Svansvottaðar byggingar

Nordic bonds: green real estate bonds

Kynning Kristians fjallaði um þróun grænna skuldabréfa á fasteignamarkaði á Norðurlöndum og hvernig áhersla á sjálfbærni hefur aukist verulega á undanförnum árum. Þar var rakin þróun markaðarins og hvernig hlutfall grænna útgáfa hefur vaxið samhliða aukinni áherslu fyrirtækja á sjálfbærni.

Kristian fór sérstaklega yfir stöðu grænnar fjármögnunar í Svíþjóð en þau eru leiðandi í útgáfu grænna fasteignaskuldabréfa, á meðan önnur Norðurlönd hafa fylgt eftir. Þá var farið yfir að þrátt fyrir að beinn verðmunur milli grænnar og hefðbundinnar fjármögnunar væri enn tiltölulega lítill, oft aðeins nokkrir basispunktar, skipti aðgengi að fjármagni og eftirspurn fjárfesta sífellt meira máli. Á þróaðri mörkuðum, svo sem í Hollandi, hefur regluverk haft veruleg áhrif, meðal annars með því að byggingar með lága orkuflokkun hefðu ekki lengur aðgang að leigumarkaði.

Í kynningunni kom fram að þótt verðmunur væri ekki alltaf mikill hefði sjálfbærni og orkunýtni aukið áhrif sín á fjármögnun, framboð og verðmæti fasteigna, og að markaðurinn væri í auknum mæli að þróast í átt að strangari kröfum og auknu vægi grænna lausna.

Glærur -Nordic bonds