Viðburður: Breytt heimsmynd - geopólitísk áhætta, fjármálamarkaðir og sjálfbær þróun

8/04/2026

Í ljósi aðstæðna í heimsmálum stendur IcelandSIF fyrir staðfundi þann 21. apríl klukkan 9:00 í húsnæði KPMG þar sem fjallað verður um vaxandi geopólitíska áhættu og hvaða áhrif hún hefur á fjármálamarkaði, fjárfestingar og sjálfbæra þróun. Húsið opnar kl. 8:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Markmið fundarins er skoða hvernig geopólitísk þróun mótar fjárfestingarumhverfið og hvaða áskoranir og tækifæri felast í breyttu alþjóðlegu landslagi. Sérfræðingar munu ræða hvernig fyrirtæki og fjárfestar geta greint slíka áhættu betur og brugðist við henni á ábyrgan og framsýnan hátt.

Fyrirlesarar verða m.a.:

  • Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur hjá innri endurskoðun Landsbankans og sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum
  • Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna

Þær munu sitja fyrir pallborðsumræðum, auk Hafsteins Haukssonar, aðalhagfræðings Kviku banka.

Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur.

Fundurinn er opinn aðildarfélögum IcelandSIF.

Skráning á viðburð hér.