Stjórn

Stjórn IcelandSIF 2025-2026. Standandi frá vinstri: Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir, Per Matts Henje, Þráinn Halldórsson, Kristín Halldórsdóttir, Arnar Sveinn Harðarson (stjórnarformaður), Heiðrún Hödd Jónsdóttir og Helena Guðjónsdóttir (varaformaður stjórnar).
Arnar Sveinn Harðarson
Arnar Sveinn Harðarson
Stjórnarformaður

Arnar lærði lögfræði við Háskóla Íslands og er með LL.M. gráðu í alþjóðlegum og evrópskum viðskiptarétti frá KU Leuven í Belgíu. Hann hefur auk þess lokið prófi til öflunar héraðsdómslögmannsréttinda. Arnar starfar sem lögfræðingur og sérfræðingur í sjálfbærniregluverki ESB hjá lögfræðiráðgjöf Arion banka en fyrir það starfaði hann hjá LOGOS lögmannsþjónustu. Frá árinu 2022 hefur Arnar fengist við kennslu í bæði loftslagsrétti og umhverfisrétti við lagadeild Háskóla Íslands, auk þess sem hann hefur setið í stjórn bókaútgáfunnar Codex.

Helena Guðjónsdóttir
Helena Guðjónsdóttir
Varaformaður stjórnar

Helena er með B.A. gráðu í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Goldsmiths University of London og MBA gráðu frá IESE Business School í Barcelona með áherslu á sjálfbær fjármál og stefnumótun fyrirtækja. Hún starfar sem deildarstjóri viðskiptaþróunar og sjálfbærni hjá Íslandssjóðum. Starfaði áður í sjálfbærnimálum hjá Kviku eignastýringu og Kviku banka og þar áður hjá bresku verslunarkeðjunni Hamleys í Bretlandi og Tékklandi. Hún vann með The Sustainability Board, sem er óháð hugveita sem vinnur að því að efla leiðtoga á sviði sjálfbærni og stuðla að góðum stjórnarháttum fyrirtækja.

Heiðrún Hödd Jónsdóttir
Heiðrún Hödd Jónsdóttir
Stjórnarmeðlimur

Heiðrún er með MSc. í alþjóðasamskiptum frá Roskilde University með áherslu á sjálfbærni fyrirtækja og hefur einnig lokið námi við Oxford University í Leading Sustainable Corporations. Starfar sem sérfræðingur í sjálfbærni innan eignastýringar LSR og leiðir þar framkvæmd á sjálfbærnistefnu sjóðsins. Starfaði áður hjá Deloitte í Danmörku innan Risk Advisory sem sérfræðingur í sjálfbærni og kom þar að fjölbreyttum verkefnum sem snéru m.a. að sjálfbærniregluverki ESB, alþjóðlegum UFS-mælikvörðum, stafrænni þróun fyrirtækja við gagnaöflun sjálfbærniupplýsinga og gagnagreiningu.

Kristín Halldórsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
Stjórnarmeðlimur

Kristín er stjórnamálafræðingur frá Háskóla Íslands og hef lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Útskrifaðist með BA í stjórnmálafræði árið 2004 með Atvinnulífsfræði sem aukagrein. Er viðskiptastjóri í Einkabankaþjónustu Íslandsbanka síðan árið 2022. Hefur starfað á fjármálamarkaði í tæp 20 ár. Starfaði hjá Landsbankanum á árunum 2004-2022.

Per Matts Henje
Per Matts Henje
Stjórnarmeðlimur

Per Matts Henje er með Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Í dag starfar Per sem sjóðstjóri erlendra verðbréfasjóða hjá Stefni og hefur unnið á fjármálamarkaði í 30 ár, lengst af við stýringu á erlendum hlutabréfasjóðum.

Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir
Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir
Stjórnarmeðlimur

Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir er með BSc. í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og MSc. í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Í dag starfar Vigdís sem viðskiptastjóri í fagfjárfestaþjónustu Landsbankans og hefur yfir 24 ára reynslu á fjármálamarkaði. Hún hóf störf hjá Landsbankanum í upphafi árs 2011 en starfaði áður við eignastýringa- og einkabankaþjónustu Íslandsbanka og forvera hans. Síðustu fjögur árin gegndi hún stöðu deildarstjóra eignastýringaþjónustu einstaklinga. Vigdís hefur komið að innleiðingu ábyrgra fjárfestinga hjá Landsbankanum auk þess að hafa verið í fræðsluhópi á vegum IcelandSIF um allnokkurt skeið.

Þráinn Halldórsson
Þráinn Halldórsson
Stjórnarmeðlimur

Þráinn er með B.A. í hagfræði frá HÍ og M.Sc. í fjármálum og fjárfestingum með gagnagreiningu sem aukagrein frá Copenhagen Business School auk þess að hafa staðist próf í verðbréfaréttindum. Í dag starfar Þráinn sem sérfræðingur í eignastýringu hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Á árunum 2015-2023 gegndi Þráinn meðal annars stöðu gagnasérfræðings á sviði ábyrgra fjárfestinga hjá Nordea Asset Management og starfaði jafnframt í IFRS ISSB Investor Advisory Group sem m.a. spilar lykilhlutverk í þróun á SASB staðlinum. Fyrr á starfsferlinum starfaði Þráinn einnig hjá Fjármálaeftirlitinu og Landsbankanum.

Fyrri stjórnir IcelandSIF

Stjórn IcelandSIF 2024-2025. Standandi frá vinstri: Vilhjálmur Þór Svansson, Vigdís Sif Hrafnkelsdóttir, Þráinn Halldórsson, Helena Guðjónsdóttir, Arnar Sveinn Harðarson (stjórnarformaður), Halla Kristjánsdóttir (varaformaður stjórnar) og Kristín Halldórsdóttir.
Stjórn IcelandSIF 2023-2024. Standandi frá vinstri: Anna Þórdís Rafnsdóttir (stjórnarformaður), Eyrún Anna Einarsdóttir (varaformaður stjórnar), Arne Vagn Olsen, Reynir Smári Atlason, Kristín Halldórsdóttir, Arnar Sveinn Harðarson og Halla Kristjánsdóttir.
Stjórn IcelandSIF 2022-2023. Standandi frá vinstri: Eyrún Anna Einarsdóttir, Anna Þórdís Rafnsdóttir (varaformaður stjórnar), Kristbjörg M. Kristinsdóttur (stjórnarformaður), Arne Vagn Olsen, Reynir Smári Atlason, Hildur Eiríksdóttir og Helga Indriðadóttir.
Stjórn IcelandSIF 2021-2022. Standandi frá vinstri: Hildur Eiríksdóttir, Anna Þórdís Rafnsdóttir (varaformaður stjórnar), Kristbjörg M. Kristinsdóttir (stjórnarformaður) og Reynir Smári Atlason. Sitjandi frá vinstri: Egill Tryggvason, Kristján Geir Pétursson og Helga Indriðadóttir.
Stjórn IcelandSIF 2020-2021. Standandi frá vinstri: Halldór Kristinsson, Egill Tryggvason, Margit Robertet (stjórnarformaður), Kristbjörg M. Kristinsdóttir (varaformaður stjórnar), Kristján Geir Pétursson, Helga Indriðadóttir og Hildur Eiríksdóttir.
Stjórn IcelandSIF 2019-2020. Efri röð frá vinstri: Egill Tryggvason, Davíð Rúdólfsson, Kristján Geir Pétursson, Margit Robertet, Halldór Kristinsson. Neðri röð frá vinstri: Óli Freyr Kristjánsson (varaformaður stjórnar) og Kristín Jóna Kristjánsdóttir (stjórnarformaður).
Stjórn IcelandSIF 2018-2019. Efri röð frá vinstri: Davíð Rúdólfsson (varaformaður stjórnar), Óli Freyr Kristjánsson. Neðri röð frá vinstri: Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir (stjórnarformaður), Kristín Jóna Kristjánsdóttir, Kristján Geir Pétursson, Egill Tryggvason og Jóhann Guðmundsson.
Fyrsta stjórn IcelandSIF 2017-2018. Standandi frá vinstri: Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir (stjórnarformaður), Jóhann Guðmundsson, Davíð Rúdólfsson, Kristján Geir Pétursson, Arnór Gunnarsson og Kristín Jóna Kristjánsdóttir.