Umhverfisvottanir bygginga: ábati, kostnaður og tækifæri fjármögnunaraðila

IcelandSIF stendur fyrir staðfundi um umhverfisvottanir fasteigna þriðjudaginn 24. mars klukkan 9:00 í húsnæði Heima. Húsið opnar kl. 8:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.

Markmið fundarins er að ná heildstætt utan um vottanir fasteigna m.t.t. ábata og kostnaðar. Fjallað verður um viðfangsefnið frá sjónarhorni ólíkra hagaðila til að reyna að fá sem heildstæðustu sýnina.

Farið verður yfir spurningar á borð við:

  • Hver er munurinn á vottuðum byggingum og óvottuðum byggingum? Hvaða hlutverki gegna vottanirnar?
  • Hvaða kostnað fela vottanirnar í sér?
  • Hvaðan koma kröfur um vottanir helst? Eru það byggingaraðilar, fjármögnunaraðilar eða kaupendur húsnæða?

Fyrirlesarar verða eftifarandi:

  • Dagbjört Erla Einarsdóttir, framkvæmdastjóri innri rekstrar (COO), Heimar
  • María Rúnarsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni, Heimar
  • Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun
  • Kristian Berg, meðeigandi hjá Arctic Securities

Nánar um fyrirlesara

Dagbjört Erla Einarsdóttir hefur starfað hjá Heimum frá árinu 2016, fyrst sem yfirlögfræðingur en síðar sem framkvæmdastjóri innri rekstrar (COO) en undir sviðið falla meðal annars sjálfbærnimál. Í starfi sínu ber hún ábyrgð á innleiðingu sjálfbærni í rekstur og starfsemi félagsins. Heimar eru skráðir í Kauphöll og eitt af stærstu fasteignafélögum landsins, leiðandi á sínu sviði og leggja ríka áherslu á sjálfbærni í rekstri fasteigna. Dagbjört er lögmaður með meistarapróf (mag.jur.) frá lagadeild Háskóla Íslands. Hún situr í stjórnum nokkurra félaga, auk Samtaka verslunar og þjónustu.

María Rúnarsdóttir er forstöðumaður sjálfbærni hjá Heimum og hefur starfað þar frá árinu 2017, fyrst sem rekstrarstjóri og síðar sem forstöðumaður sjálfbærni. Hún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet auk viðbótardiplóma í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands. María situr í stjórn Festu og hefur víðtæka reynslu af því að vinna með sjálfbærnimál í atvinnulífinu. Hún hefur tekið þátt í að styrkja sjálfbærniupplýsingagjöf og aðlaga rekstur að breyttum kröfum, auk þess að vera virkur þátttakandi í samtali um þróun sjálfbærni í íslensku atvinnulífi.

Bergþóra Góa Kvaran er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og starfar við Svansvottun bygginga. Hún lauk BA-prófi í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands og M.Arch-prófi frá Háskólanum í Brighton. Bergþóra hefur starfað hjá Umhverfisstofnun, síðar Umhverfis- og orkustofnun, frá árinu 2021 en stofnunin fer með umsýslu Svansins á Íslandi. Í starfi sínu vinnur hún að vottun og þróun Svansvottunar fyrir byggingar, bæði endurbætur og nýbyggingar og stuðlar að aukinni sjálfbærni í mannvirkjagerð.

Kristian Berg has been with Arctic Securities since the company was founded in 2007. Arctic Securities is one of the largest private Investment banks in Norway – with 400 employees. Before that he spent 12 years with JPMorgan both in Oslo and London. Head of Real Estate finance at Arctic Securities – 35 years.

24mar
Tímasetning
09:00 - 10:00
Staðsetning

Heimar, Hagasmári 1, 201 Kópavogur

Skráning opnar:

kl. 10:00 16/02/2026

Skráning endar:

kl. 20:00 23/03/2026