Omnibus

Lokaniðurstaða

Þessi síða var síðast uppfærð í mars 2026

Frá því IcelandSIF fjallaði um Omnibus-tillögu framkvæmdastjórnar ESB í desember 2025 hefur málið tekið mikilvægt skref áfram. Nú liggur fyrir endanleg niðurstaða eftir samkomulag milli stofnana ESB.

Endanlegt samþykki náðist 24. febrúar 2026 og breytingarnar tóku gildi 18. mars 2026. Um er að ræða breytingar á lykilregluverki á sviði sjálfbærni, þar á meðal CSRD, með það að markmiði að einfalda kröfur, draga úr álagi á fyrirtæki og auka samræmi milli reglna.

Helstu efnisbreytingar fela í sér að umfang reglugerðarinnar er þrengra en áður var lagt upp með, sem þýðir að færri fyrirtæki falla undir skýrsluskyldu. Jafnframt hefur tímalína skýrslugjafar verið frestuð, þar sem fyrstu skýrslur munu líklega færast til ársins 2027 (með birtingu 2028).

Á Íslandi hafa reglurnar enn ekki tekið gildi þar sem þær þurfa að fara í gegnum innleiðingu í gegnum EES-samninginn og íslensk lög. Óvissa er því enn til staðar um tímasetningar og útfærslu hérlendis, en líklegt er að innleiðing geti átt sér stað á árunum 2026–2027.

Þróunin í Evrópu endurspeglar ákveðna stefnubreytingu þar sem lögð er aukin áhersla á einfaldara og hnitmiðaðra regluverk. Á sama tíma hefur umræðan sýnt að jafnvægið milli gagnsæis, samanburðarhæfni og álags á fyrirtæki er áfram lykilatriði í mótun sjálfbærniregluverks til framtíðar.

Omnibus - glærur mars 2026